Karellen

Öll börn og foreldrar eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa, þegar á þarf að halda. Til þess að styðja við að þau fái rétta þjónustu, frá réttum aðilum á réttum tíma geta þau óskað eftir samþættri þjónustu í þágu farsældar barna hjá tengilið leikskólans. Hugtakið farsæld vísar í aðstæður þar sem barn getur náð fullum þroska og heilsu á eigin forsendum.

Tengiliður farsældar í leikskólanum er Sonja Finnsdóttir iðjuþjálfi. Ef foreldrum eða börnum vantar aðstoð má hafa samband við hana á sonjaf@graenuvellir.is



Hlutverk tengiliðar farsældar er:
að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi.
að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn.
að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.
að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra.
að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.

Nánari upplýsingar um farsældina má finna á vef Barna og fjölskyldustofu:

https://island.is/s/bofs/farsaeld-barna











© 2016 - 2026 Karellen