Karellen
news

Hefur þig langað að prófa að starfa í leikskóla?

15. 08. 2023

Leikskólinn Grænuvellir á Húsavík auglýsir nokkrar stöður lausar til umsóknar. Um er að ræða tvær 100% stöður, vinnutími 8:00-16:15 og þurfa umsækjendur að geta hafið störf sem fyrst. Auk þess eru lausar tvær 100% stöður í nóvember.

Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 160 börn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla, leikur og STEAM.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Menntunar- og hæfniskröfur:

• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.

• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg.

• Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra.

• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.

• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.

• Stundvísi og reglusemi.

• Hreint sakavottorð.

• Vammleysi.

• Góð íslensku kunnátta.

• Reyk, veip- og tópakspúðaleysi.


Fríðindi sem fylgja starfinu er afsláttur og forgangur barna í leikskólann auk þess fríar máltíðir. Sótt er um á heimasíðu leikskólans, graenuvellir.karellen.is

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2023.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir í síma 464-6160 eða á netfangið siggavaldis@graenuvellir.is


© 2016 - 2024 Karellen