Leikskólinn Grænuvellir á Húsavík auglýsir tvær stöður kennara lausar til umsóknar. Einnig verða skoðaðar umsóknir frá starfsfólki með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Störfin henta hvaða kyni sem er.
Um er að ræða tvær 100% framtíðarstöður, vinnutími 8:00-16:15.
Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 154 börn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a leikur, læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla, STEM og tónlist.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga Framsýn og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf um miðjan mars og byrjun apríl. Þeir sem hafa eldri umsóknir og hafa áhuga á að sækja um eru beðnir um að endurnýja umsóknir.
Sótt er um á vefsíðu leikskólans, graenuvellir.karellen.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 2023.
Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir í síma 464-6160 eða á netfangið siggavaldis@graenuvellir.is