Karellen
news

Leikskólakennarar, kennarar með leyfisbréf eða annað starfsfólk óskast

29. 06. 2023

Leikskólinn Grænuvellir á Húsavík auglýsir nokkrar stöður lausar til umsóknar.

Um er að ræða sex 100% stöður inn á deildir og í afleysingar með vinnutímann 8:00-16:15 og ein 50% staða með vinnutímann 12:15-16:15 (til greina kemur einnig 14:00-16:15).

Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 160 börn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla, leikur og STEAM.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg.
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Stundvísi og reglusemi.
  • Hreint sakavottorð.
  • Vammleysi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Reyk, veip- og tópakspúðaleysi.

Fríðindi:

Forgangur á vistun leikskólabarna.

50% afsláttur af leikskólagjaldi.

Frír matur.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf síðustu tvær vikurnar í ágúst eða í byrjun september.

Sótt er um á vefsíðu leikskólans, graenuvellir.karellen.is

Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí 2023

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir í síma 8474766 og Helga Jónsdóttir í síma 8652148.

© 2016 - 2024 Karellen