Karellen

Á Grænuvöllum vinnum við eftir jákvæðum aga sem er uppeldisstefna sem byggir á sjálfsstjórnarkenningum. Sjálfsstjórnarkenningar fela það í sér að í stað þess að reyna að breyta hegðun barnanna með umbun og refsingu, er markmiðið að ná til innri hvata barnanna. Þannig læra börnin að gera það sem er rétt vegna þess að þau langar til þess en ekki vegna þess að þau geri ráð fyrir að fá umbun eða verðlaun fyrir að sýna góða hegðun eða gera eitthvað gott. Að sama skapi er það þannig að við beitum ekki refsingum þegar börnin sýna óæskilega hegðun, heldur vinnum að lausn með þeim og hjálpum þeim að læra af mistökum sínum.Þannig verða þau ekki hrædd við að viðurkenna mistök. Við skoðum hvað er á bak við hegðunina - hvers vegna börnin gera það sem þau gera og vinnum með það.

Jákvæður agi byggir á kenningum Alfred Adler (1870-1937) og Rudolf Dreikurs (1897-1972)sem voru austurrískir geðlæknar. Upphafsmenn jákvæðs aga eru Jane Nelsen og Lynn Lott en fyrsta bók Nelsen—Positive Discipline eða Jákvæður agi kom út árið 1981. Síðan þá hefur Nelsen ásamt öðrum skrifað fjöldan allan af góðum bókum um jákvæðan aga.

Í jákvæðum aga eru ýmis verkfæri sem við notum í daglegu starfi. Þar má til að mynda nefna barnafundi, lausnahjól, jákvæða einveru, vinnu með tilfinningar og að bjóða tvo kosti. Auk þessara verkfæra eru mörg frábær verkfæri í viðbót sem þið eigið eftir að kynnast.


Fimm viðmið jákvæðs aga

  1. Hjálpar börnum að finna að þau skipta máli, að þau tilheyra og að þau eru mikilvæg.

2. Sýnir á sama tíma góðvild og festu. Kennarar sýna væntumþykju og hlýju í verki og á sama tíma gæta þeir þess að meina það sem þeir segja og segja bara það sem þeir geta staðið við.

3. Ber árangur þegar til lengri tíma er litið. Hefur jákvæð áhrif á hugsun, tilfinningar, nám og ábyrgar ákvarðanir

4.Kennir mikilvæga félagsfærni og lífsleikni; virðingu, umhyggju fyrir öðrum, lausnamiðun, samvinnu og þátttöku í litlu samfélagi sem stóru (heimili, skóli, bærinn, borgin).

5. Hjálpar börnum að uppgötva hversu hæf þau eru, eflir vald þeirra og sjálfstæði.

© 2016 - 2024 Karellen