Karellen
news

Leikskólakennarar óskast

23. 11. 2022

Vegna fjölgunar á Grænuvöllum auglýsir leikskólinn eftir þremur kennurum með leyfisbréf til kennslu eða starfsfólki með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Störfin henta hvaða kyni sem er.

Um er að ræða tvær 100% framtíðarstöður, vinnutími 8:00-16:15.

Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með um 150 börn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla og leikur.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Menntunar- og hæfniskröfur:

• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara

• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg

• Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra

• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum

• Stundvísi og reglusemi

• Hreint sakavottorð

• Góð íslenskukunnátta

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í janúar eða sem fyrst eftir áramót. Þeir sem hafa eldri umsóknir og hafa áhuga á að sækja um eru beiðnir um að endurnýja umsóknir.

Sótt er um á vef leikskólans, graenuvellir.karellen.is

Umsóknarfrestur er til og með 2. desember.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir í síma 464-6160 eða á netfangið siggavaldis@graenuvellir.is

© 2016 - 2024 Karellen