Karellen
news

Leikskólakennarar eða annað starfsfólk óskast

14. 06. 2022

Leikskólinn Grænuvellir auglýsir eftir kennurum með leyfisbréf til kennslu og öðru starfsfólki með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Störfin henta hvaða kyni sem er.

Um er að ræða fjórar 100% stöður á deildir og í afleysingar með vinnutímann 8:00-16:15 og fjórar 50% stöður í afleysingar eftir hádegi með vinnutímann 12:15-16:15

Leikskólinn Grænuvellir er átta deilda leikskóli með yfir 150 börn. Uppeldisstefna leikskólans er Jákvæður agi. Aðrar áherslur eru m.a læsi, snemmtæk íhlutun, útkennsla og leikur.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga og/eða viðkomandi stéttarfélags.

Menntunar- og hæfniskröfur:

• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara

• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna æskileg

• Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra

• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum

• Stundvísi og reglusemi

• Hreint sakavottorð

• Góð íslensku kunnátta skilyrði

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í ágúst en tvær af 100% stöðunum í október. Þeir sem hafa eldri umsóknir og hafa áhuga á að sækja um eru beiðnir um að endurnýja umsóknir og senda á netfang leikskólastjóra. Allar umsóknir verða skoðaðar.

Sótt er um á graenuvellir.karellen.is og mikilvægt er að ferilskrá og meðmælendur fylgi með.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir leikskólastjóri í síma 464-6157 eða á netfangið siggavaldis@graenuvellir.is

Frekari upplýsingar umstarfsemi leikskólans má finna á vefsíðu leikskólans sem er graenuvellir.karellen.is

© 2016 - 2024 Karellen